Hamingjan's Blog

Og plottið þykknar…
Verið alveg róleg, ég er búin að ná mér niður á jörðina. Engin blóts- eða fúkyrði í færslu dagsins, oseiseinei.

En ég skal varpa stuttlega ljósi á það sem átti sér stað – og svo nenni ég ekki að gera meira úr því. Allavega, ég var sumsé búin að sitja í 3 daga og hringja út um allt og enginn vissi neitt um þessa skutlþjónustu og ég fékk alls konar misvísandi upplýsingar. Svo fékk ég jú, nota bene, sækingu í skóla / leikskóla stelpnanna og skutl heim. Það hefði átt að virka sem staðfesting á að það væri í lagi. Svo hringdi ég á miðvikudagsmorgun  í manninn sem var upptekinn á þriðjudeginum og jú, loksins einhver sem virtist vita hvað þetta gekk út á, svona nokkurn veginn frá A til Ö. Ég spurði hann margra spurninga og lýsti yfir eindreginni ánægju minni með það sem virtist vera í lagi, sumsé að við gætum fengið bíl frá skólanum og heim. Svo hringdi ég seinni partinn til að panta bílinn fyrir þann daginn – en þá var það ekki í lagi. Þessi huggulegi maður sem ég ræddi við um morguninn hafði þá hringt í þjónustuborðið til að láta vita að það væri ekki í lagi að fá skutl frá skólanum / leikskólanum og heim til okkar. Ég trúði einfaldlega ekki þjónustuborðsstráknum þegar hann sagði mér þetta og hringdi því aftur í mann morgunsins – sem staðfesti kinnroðalaust að hann hefði tékkað á þessu eftir að við töluðum saman og að skólinn væri utan þess þjónustusvæðis sem tengist mínu heimili. Og ekkert að segja mér neitt (ég hringdi í gemsann hans = hann hafði númerið).

Það var þá sem ég setti inn færslu sem innihélt blótsyrði í titli.

Og svo, þegar skapið sjatnaði… tjah, þá prófaði ég að panta bíl heim frá mörkum þjónustusvæðisins og heim… og það er… ja, veit ekki hvað skal segja… svona frekar slöpp redding, en jú, gæti vissulega sparað okkur nokkrar mínútur í göngu. Breytir svo til engu tímalega séð, við erum komnar heim á svipuðum tíma og venjulega, þar sem aðeins er hægt að panta ökutæki á heila tímanum. Hefði það sótt okkur í skólann hefði ég getað pantað það kl. 16.00, en þegar ég þarf að panta það út á mörk þurfum við að labba í 20 mín. og þá næst það aldrei fyrr en kl. 17.00.

Eini ávinningurinn væri því ögn minna þreytt börn og e.t.v. minna væl og rifrildi. Ég þarf að hugsa þetta vel áður en við notum 640.- kall í eitthvað sem breytir þrátt fyrir allt svona litlu.

En svo, af því að nágranninn er alveg óvart orðinn að sögupersónu hér, ætlaði ég að deila með ykkur öðru. Rétt er að taka það fram fyrst að þessi maður hefur harla lítil áhrif á mig og mitt líf hér. Ég áætla að ég geti talið á fingrum annarrar handar þau skipti sem við höfum hist, í garðinum, eða hann komið yfir hingað með syni sína… tjah, það hafa varla verið fleiri skipti en í mesta lagi 5 – 6, með afmælisboðinu þá. Og svo hefur hann jú sett sig í samband á Facebook, en ég hef vísvitandi verið frekar fáorð þar (gagnvart honum, það er að segja). Flestir sem ég vinn með og jafnvel sumir foreldrar barna á leikskóla / skóla dætra minna eru mun stærri persónur og leikendur í mínu lífi. Mamma bestu vinkonu yngri dóttur minnar hefur t.d. tvisvar komið í heimsókn með þá stuttu og ég farið með mína heim til þeirra og svo skutlaði hún okkur heim í þarsíðustu viku einni daginn og við spjöllum voða mikið þegar við hittumst, SMSumst jafnvel (mest varðandi stelpurnar)… og jú svo vinn ég með ágætu fólki sem ég spjalla oft við þó að samskiptin fari sjaldnast út fyrir vinnurammann. Þannig séð er fyndið að granninn sé að verða að einhverri aðalpersónu hér.

Og þá að efninu: Ég fékk skilaboð á Facebook á miðvikudaginn. Skráður sendandi var kona sem ég veit engin deili á. Þekkti ekki nafnið. Gúgglaði hana og hún virðist búa í Þrándheimi. Við eigum einn sameiginlegan vin, nefnilega grannann. Skilaboðin voru svohljóðandi (í heild sinni, biðst forláts á vanköntum í þýðingu (sem orsakast af viðleitni til að hafa þetta sem mest orðrétt)):

Hæ, ég þekki nágranna þinn, XXX XXX (*nafnið hans), og er með spurningu sem ég vona að þú getir svarað: Hversu mikið (og hvers kyns) er samband ykkar? Ég kýs að greina ekki frá ástæðu þess að ég spyr…. En vona að erindi mitt verði okkar á milli… Fyrirfram takk!

Jæja… svo þið segið það?

Ég verð nú að viðurkenna að þetta er með því fáránlegasta sem ég hef lent í lengi. Og nei, engar áhyggjur, ég er ekkert að fara að svara. Mér hafa dottið í hug nokkrar samsæriskenningar síðan ég fékk þetta, en látum þær liggja á milli hluta.

Það sem veldur mér óþægindatilfinningu, er að þegar ég sjálf er ekki mjög vel stemmd (sem t.d. blótsyrði í yfirskriftum færslna geta gefið vísbendingu um…) þá hafa í gegnum tíðina laðast að mér klikkaðir einstaklingar. Þið sem hafið þekkt mig lengi munið kannski eftir nágrannakonunni sem réðist að næturlagi á dyrnar mínar með röri, íklædd nærhaldi og vaðstígvélum. Eða frúnni sem ég deildi hústökuhúsnæði með í Osló á sínum tíma, sem af og til braut og bramlaði allt leirtauið í húsinu, gat á köflum verið mjög indæl og boðið upp í ljómandi samræður sem svo voru skyndilega rofnar af því að hún þurfti að taka við skilaboðum frá guði…

… og já, dæmin eru sorglega mörg – og hafa í gegnum árin verið í nokkuð öruggu synki við mína eigin geðheilsu. Kannski er ég og mitt andlega ástand enginn faktor, en einhvern veginn finnst mér að ég sé segull á klikkhausa þegar ég sjálf er orðin eitthvað tæp – ekki að ég sé tæp á sama hátt, sko (engin stálrör, ekkert brotið leirtau og tek svo til einvörðungu við skilaboðum frá álfum…).

Og það versta við klikkhausana er að þeim fylgja alls konar ömurlega fáránlegar uppákomur. Fyrr en kona veit eru dúkkaðar upp einhverjar súrrealískt absúrd aðstæður (svo sem til dæmis flissandi löggur að yfirheyra æstan eldri borgara í vaðstígvélum um miðja nótt inni í þvottahúsi – en því miður oft eitthvað miklu verra og fjarstæðukenndara)… sem konu hvorki langar til að vera í, né heldur þurfa að finna leið til að koma sér út úr!

Þannig að þetta kreisíleidískiló er smá svona wake up call. Verð að drífa mig að ná mér í góðan skammt af geðheilbrigði áður en furðufuglarnir fara að verða mér alvarlegur fjötur um fót… nóg er nú samt!

F***ing ábyrðgarlausa, sjálfhverfa skítapakk
Gleymið öllu sem ég skrifaði í gær.

Eftir bara 3 daga af INTENS-rannsóknarvinnu er hér með komið formlega í ljós að þessar frábæru almenningssamgöngur eru EKKI ætlaðar mér. Nýjasta nýtt er að skóli barnanna er ,,utan” þjónustusvæðis. En enginn af þessum 6 fyrstu sem ég talaði við gat sagt mér það, ekki heldur þau sem svöruðu þegar ég pantaði í gær, né heldur leigubílsstjórinn. En það er semsagt komið á hreint núna.

Og ég sem, nota bene, beið með að segja dætrum mínum frá þessu þar til ég var orðin eiginlega alveg HANDVISS, í eftirmiðdaginn í gær, semsagt. Ekki vill kona nú vekja falskar vonir.

Frábært. Takk Steinkjer kommune.

Nágranninn fær smá kredit (smá, já)
Ókey, ég er ekki óréttlát kona. Þeir sem eiga skilið kredit fá það alveg, sko. Þess vegna helga ég svo til heila færslu hér með nágrannanum sem ég hef áður minnst á. Til upprifjunar þá var ég ekkert yfir mig hrifin… og það er ég reyndar ekki enn. En hér kemur smá um nágrannann og hvernig hann hefur, að öllum líkindum, stuðlað að því að létta lífið um eitt markvert álagsstig.

En þetta byrjar ekki vel.

Mataræði okkar mæðgna hefur borist í tal í svo til hvert sinn sem ég hef hitt grannann… sem er satt að segja ekkert svo oft, fram til þessa. Kannski svona 5 – 10 sinnum. Nema hvað; alltaf hefur hann reynt að bjóða okkur eitthvað, eða lokka okkur til sín með girnilegu pizzuboði eða öðru slíku og við höfum bara staðfastlega afþakkað. Ég sagði honum, í fyrsta sinn sem hann bankaði upp á, að það tæki því ekki fyrir hann að svo mikið sem reyna að bjóða okkur upp á eitthvað, það væri ekki fyrir leikmenn að útbúa mat eftir okkar þörfum. Lét hann sér segjast? Ónei. Hefur hann heyrt eitthvað í hin skiptin sem ég hef hitt hann? Nei.

Fyrir helgina fengum við boð í afmæli eldri sonar hans. Hann á reyndar heima hjá mömmu sinni í Þrándheimi, en er í helgarpöbbun hjá föðurnum aðra hverja helgi. Búinn að fá eitt afmæli í Þrándheimi og nú var annað planað hér. Granninn sagði mér, á Facebook, að hann væri búinn að massetta, hann var sumsé búinn að finna glúten- og laktósalausa köku sem hann ætlaði að bjóða okkur upp á – og eitthvað voða gott gos.

Ég svaraði, kurteislega, þurrlega en staðfastlega og í fullu samræmi við fyrri framburð:

,,Takk fyrir að þú hugsar til okkar, en ekkert af því sem þú nefnir er í lagi fyrir stelpurnar. Hafðu ekki áhyggjur, við tökum eitthvað gott með okkur”.

Er þetta ekki nokkuð óyggjandi og afgerandi?

Ég meina, þið mynduð alveg ná þessu, er það ekki?

En ekki Granni granni. Ónei.

Ég var rétt komin inn og sest í sófann hans þegar hann, í öllu sínu 2ja metra veldi, var búinn að planta sér fyrir framan mig og var að reyna að pranga inn á mig og mínar gosdrykkjum. Nei takk, sagði ég. Gaf hann sig? Nei. Hann náði í hverja litríka gosflöskuna á fætur annarri og otaði að mér innihaldslýsingum (mest sykur og aukaefni). Ég tók ,,köldu öxlina” á hann. Reyndi að stofna til samræða við bróður hans, hinum meginn við borðið – og 15 ára son hans sem var að lesa Hringadróttinssögu í hinum enda sófans. Reyndi með því að hrista gestgjafann af mér. Gekk brösuglega.

Var á tímabili farin að sjá mikið eftir því að hafa komið.

Fljótlega fannst honum börnin eitthvað of róleg, þannig að hann hópaði þeim saman í eldhúsið þar sem hann fóðraði línuna á glúten- og laktósalausu súkkulaðikökunni (ca 90% sykur, enda létu áhrifin ekki á sér standa). Að sjálfsögðu vildi hann ólmur gefa dætrum mínum líka og otaði að mér friggin’ pakkanum utan af deigblöndunni og ætlaðist til að ég læsi mér til um innihaldið af leiftrandi áhuga. Aftur kalda öxlin.

Og nú hugsið þið ef til vill, ,,átti granninn ekki að fá kredit í þessari færslu?”. Og jú, mikið rétt, það er að koma. Fyrst þurfti ég bara að blása smá út. Ekki að ég viti ekki að fólk meinar vel, en halló, það þarf að þekkja sín takmörk. Það er ekki eins og ég hafi ekkert meira gefandi að gera en diskútera næringarfræði við fólk sem fær sér kók í morgunmat.

Á meðan hann var að byrla börnunum örvandi náði ég bróður hans á smá skrið í samræðum. Bróðir hans spurði mig upp úr þurru hvort ég þekkti tiltekinn Íslending sem hann nafngreindi og sagði hafa búið í Þrándheimi. Ég átti jú einu sinni kærasta með þessu nafni, fyrir svona… tjah… 18, 19 árum, en var nokkuð efins um að hann hefði einhverju sinni búið í Þrándheimi. Hann sýndi mér þá nýlega mynd af sínum kæra vini; mínum fyrrverandi, í símanum sínum… fliss, fliss. Jú, litli heimur. Bróðir nágrannans er sumsé mótorhjólagaur, eins og fyrirlöngufyrrverandi. Þeir kynntust í Þrándheimi. Fyndið.

Í síðustu viku var vont veður dag einn og þar sem börnin eru einkar stúrin á leiðinni heim eftir skóla kveið ég fyrir að brjótast heim með þær, upp í móti, í blindhríð. Lagði út meldingu á Facebook… sem reyndar bar ekki árangur en ég fékk samt far heim með þær þann daginn (þökk sé nettfjarskyldum engli, langamma mín var systir langalangafa hennar). En granninn sá þessa meldingu og sendi mér skiló seinna um kvöldið þar sem hann sagði að ég gæti tekið taxa á verði strætó. Skrítið. Hann sendi mér einhvern hlekk. Ég opnaði hann… en var engu nær.

En svo, þegar börnin voru tekin að æsast, kom hann og hlammaði sér í sófann á milli mín og sonar síns. Þetta er sko frekar lítill sófi og bæði hann og sonur hans eru vel við vöxt. Þið sjáið þetta fyrir ykkur.

Hann fór að segja mér frá þessari skutlþjónustu. Hann sagði að þetta væri þannig að af því að Steinkjerstrætó var hvort eð er alltaf tómur, hafi bærinn hætt að reyna að halda úti strætókerfi. Í staðinn má panta sér leigubíl, á strætóleiðarnar, og nota það í staðinn. Ég var vissulega áhugasöm… en efins.

Nema hvað… eftir matinn voru laktósa- og glútenlausu súkkulaðikökubörnin snaróð uppi um rafta og rjóður og mínum sallarólegu lífrænu-hunangs-og-eplakökubörnum var eiginlega nóg boðið. Kúrðu sig mest í fangi mínu og í öruggri nálægð, uns mér fannst höffligt að fara að tygja mig.

Í gær réðist ég síðan í rannsókn málsins. Reyndar er mikið að gera þessa vikuna, kennslulota, workshop (sem breyttist í dag í fund), fyrirlestur og alls konar. En ég tók frá nokkrar mínútur í að hringja í þessa almenningssamgönguþjónustu. Fyrst um morguninn. Talaði við ungan mann sem vissi harla lítið.

Borga? Jú, ég þyrfti að borga fyrir okkur allar, strætóverð. Ha, fá fjögurra ára frítt? Blaðiblað… klóríkolli, jú líklega var það rétt á mér. Ókey, frítt fyrir yngri þá. Strætókort? Nei, því miður, það virkar nú ekki. En gæti virkað einhvern daginn (hér kom sér vel að hafa rætt vandlega við grannann, því ég stóð fast á mínu). Jú, heyrðu, ókey þá það má víst kaupa strætókort í þessa þjónustu. Verð á því? Tjah… hugsihugs… flettiflett jú, 400 fyrir fullorðna. Börn? 240.

Get ég þá ferðast frjálslega til og frá vinnu/skóla/leikskóla/heimilis fyrir 640.- NOK á mánuði, í leigubíl? Já, svo sagði hann.

Sem betur fer er ég ekki fædd í gær. Hugsaði þetta lengi dags. Fannst of gott til að vera satt. Hringdi aftur. Stúlka svaraði. Nei, ég get ekki tekið svona bíl á morgnanna. Ekki fyrr en eftir kl. 9.00. Hversu praktískt er það… fyrir fólk sem þarf að fara til vinnu? Nema hvað, ekki vissi konan unga um önnur úrræði til að komast leiðar sinnar í morgunsárið, né heldur hvar ég gæti keypt svona strætókort. Bað mig að hringja í bæjarfélagið (!). Full efasemda pantaði ég bíl fyrir daginn í dag, heim, það er að segja.

Hringdi svo í bæjarfélagið í dag. Ekki vissu þau neitt um strætókort. Sögðu mér að hringja í fylkisskrifstofuna. Gerði það. Ekki vissi símakonan heldur hvar versla mætti strætókort hér í bæ. Vísaði mér áfram til annarrar konu. Hún var alveg græn (en vissulega vingjarnleg). Gaf mér símann hjá manni sem myndi örugglega vita það… (nei, þetta er ekkert djók, það er meira en að segja það að versla strætókort, skal ég segja ykkur. Ekki sjálfgefið mál). En maðurinn var upptekinn þar til á morgun. Ég má hringja í hann þá.

Hins vegar sagði leigubílsstjórinn mér hvar hægt er að kaupa strætókort. Og eins og þetta hafi ekki verið orðið nógu dularfullt fyrir, þá ku aðeins vera hægt að kaupa það á milli kl. 11 og 14 á virkum dögum… sem er bara alveg týpískt fyrir Noreg. Reynið bara að halda úti þjónustustarfssemi á milli 11 og 14 á Íslandi…

En strætókortasalan leynilega er staðsett rétt hjá vinnustað mínum. Og þar sem að ferðin heim í leigubílnum var ljúf og börnin sátu hljóð og prúð aftur í, við vorum komnar heim klukkustund fyrr en venjulega og engin rifrildi áttu sér stað, þá tel ég 640.- NOK lágt verð fyrir slíkan munað. En reyndar verð sem ég á ekki… tæknilega séð… eh… hérna… en ég er stillt í bjartsýnisgírinn núna og tek það á VISA.

Hugsið ykkur bara: Sólarhringurinn minn var að lengjast um klukkustund.

Þess vegna á granninn skilið kredit.

Ekki sem verst, svona almennt…
Ókey… ég er SJÚHÚHÚKLEGA sybbin… en ég er þjökuð af samviskubiti sem segir mér að fámennur en mikilvægur hópur fólks haldi að ég sé með snöruna um hálsinn hérna í einangruninni… og mér rennur blóðið til skyldunnar að skrifa aaaaðeins jákvæðara innlegg (en síðast) fyrir svefninn.

Nú er vikan sumsé liðin. Hún var löng og þung… en fullt af ljósum punktum. Til dæmis fékk ég alls 4 sinnum far innanbæjar með 4 mismunandi sjálfrennireiðum (og enginn af bílstjórunum hefur, mér vitanlega, lesið bloggið… þannig að það var ekki hvatinn (spurning með álfana, samt))… og þar af 3 sinnum með börnin innaborðs, þeirri yngri til stjarnfræðilegs léttis (hún HATAR að paufast upp brekkuna okkar… skil hana svo vel)…

… ég er búin að fá útborgað og búin að borga alla reikningana nema eldiviðinn sem ég fékk frestað… peningarnir eru reyndar hér með uppurnir, en það er allt í lagi því ísskápurinn er fullur. Bara rúmar 2 vikur í barnabætur…

Svo mundi ég allt í einu að ég var víst búin að spotta eina konu sem mér finnst svolítið spennandi og vil gjarnan vinkonast við… hún á reyndar heima í Trondheim, sem er smá svona mínus. Fyrir ykkur sem búið í Reykjavík er fjarlægðin svona sirka eins og Hvolsvöll… eða eitthvað. En hvað um það, kona verður að líta á björtu hliðarnar og þessi tilvonandi vinkona (lítið veit hún sjálf…) hefur af höfðingskap boðið mér að vera með í akademískum leshring þann 1. febrúar. Stay tuned…

Svo er ég búin að vera hreint ótrúlega dugleg að vinna í sprautufóbíunni minni og ég er alveg viss um að dætur mínar eru alveg á mörkum þess að verða stálhraustar.

Þess ber einnig að geta að þessi vetur er margfalt mildari en hræðilegi nístandi fimbulveturinn í fyrra. Hingað til hefur frostið bara rétt snert 10 gráðurnar einu sinni eða tvisvar… oftast er hitastigið í kringum núllið og -20 gráðu ólífi er guðs lifandi fjarri í ár – 7, 9, 13.

Og þetta þarna með að ég fengi ekki lánað frá bæjarfélaginu ef ég vildi kaupa hús virðist hafa verið byggt á misskilningi… ekki mínum, sko, heldur bæjarstarfsmannsins sem sér um þessa hluti. Ég hringdi í húsnæðislánastofnun sem kom af fjöllum og bað mig að láta hann hringja í sig, sem hann vildi reyndar ekki en varð eitthvað vandræðalegur og hálfát þetta ofan í sig (en þó ekki alveg)… ætlar að gefa mér svar eftir helgi. Önnur ástæða til að muldra möntruna: 7, 9, 13…

Já svo var eitthvað fleira gott og gæfulegt, en ég er bara svo SYFJUÐ.

Ég er að fara að kenna helling í næstu viku, auk workshop og fleira. Mikið að gera. Pínu stress… sérstaklega varðandi kennsluna á mánudag og þriðjudag… en samt líka ágætt að hafa fasta tímapunkta til að stilla sig inn á.

Ég VERÐ að fara að sofa.

Tilvistarkreppa (varúð, löööng og fúl færsla)
Ef einhver er í stuði til að lesa eitthvað létt og skemmtilegt, svona nett framlag til almennrar jákvæðrar orku í heiminum, þá verður sú hin sama (/sá hinn sami) að leita annað, því það er ekki að fara að koma í þessari færslu. Og bara svo það sé á hreinu, þá verð ég ekkert móðguð þó að þið browsið eitthvert annað. Ég lofa.

Ef svo fer sem horfir verður þessi færsla þvert á móti kveinstafafærsla dauðans og því ráðlegt fyrir viðkvæmar sálir að hreinlega sleppa því að lesa. Án gríns; ekki vanmeta hversu öfganeikvæð og sjálfsvorkunarsöm ég get verið þegar ég fer af stað. Það er alls ekki víst að allir lesendur komist andlega óskaddaðir frá því sem ég er að hugsa um að hella yfir skjáinn núna, þannig að áframhaldandi lestur er alfarið á ykkar eigin ábyrgð. Ekki segja að ég hafi ekki varað ykkur við.

En já, það var þetta með hreinskilnisstefnuna á þessu bloggi. Þó að ég vilji dreifa gleði og bjartsýni og allt það, þá get ég ekki platað heldur. Og það er spurning um trúverðugleika að segja hlutina eins og þeir eru.

Í fyrrahaust (þá meina ég 1. sept. 2010) yfirgaf ég fósturjörðina. Ég lenti í huggulegri íbúð með frábæran leigusala á neðri hæðinni. Yngri dóttir mín fékk góðan leikskóla en sú eldri frekar lélegan skóla sem við vorum ekki mjög ánægðar með. Ég fékk afleysingastarf þar sem hugsanlegir vitsmunalegir hæfileikar mínir skiptu nákvæmlega NIX máli og andleg örvun var engin, en vinnufélagarnir voru ósköp huggulegur hópur fólks. Fjarlægð frá vinnu til heimilis (og til baka) var allnokkur. Ég var með au-pair, sem hjálpaði mér, sá að mestu um fylgd og sækingar í og úr skóla / leikskóla, braut saman þvott, hjálpaði til með að halda íbúðinni rykfrírri, ryksuga og taka til og svona. Ef ég vildi fara út að kvöldlagi, sem gerðist vissulega sjaldan, var ég með pössun. Framan af var ég vinalaus og vesæl en hafði þó alltaf félagsskapinn af barnapíunni (mjög dýrmætur fullorðinskontakt), og átti á tíðum ágætar stundir með leigusalanum. Ég átti góð og gefandi persónuleg samskipti við vinnufélagana og þegar komið var fram á vor var ég komin með ágætis félagslegt net. Ég var oftast skítblönk og varla að launin dygðu fyrir leigu, rafmagni, skóla, leikskóla, barnapíulaunum, samgöngum og mat. Þurfti stundum að fá lánað úr litlum sparibaukum fyrir útborgunardag. Það er náttúrlega LAME (og ég mun kinnroðalaust þræta fyrir það ef ég verð spurð). Ég var líka lúin og fannst leitt að vera að heiman í hátt í 11 klst á dag. Fannst matargerð líka taka mikinn tíma.

Stutt samantekt, semsagt.

Ég lét það sem ekki var nógu gott pirra mig gríðarlega. Mest var ég óánægð með eftirfarandi:

Lítt vitsmunalega örvandi starf

Lág laun

Skóla eldri dóttur minnar

Fjarlægðir (heimili – vinnu, heimili – félagslegt net, vinna – skóli/leikskóli osfrv.)

Þess vegna setti ég rosalega mikla orku í að breyta þessu. Því hafið þið fengið að fylgjast með. Og sjá; ég fékk allt sem ég fókuseraði á:

Vitsmunalega örvandi starf – tékk

Ágæt laun – tékk

Frábær skóli fyrir erfðaprinsessuna – tékk

Skóli og heimili í sama bæ – tékk

Og… hamingjan blasir við… oder was?

Sko, síðasti rafmagnsreikningur hljóðaði upp á 70.000.- ISK. Hann var nota bene fyrir desember, mánuð sem ég var hér einungis í 20 daga af 30. Og nei, ég var ekki með upplýstan jólasvein og 12 syngjandi hreindýr í garðinum… alls var ég með eina seríu, innanhúss, sem fékk að loga frá 17.30 til 22.00 eða svo – og auðvitað ekki á meðan ég var á Íslandi. Þannig að… já, ágæt laun, en það þarf aðeins að horfa á þetta í víðara samhengi.

Í Askim borgaði ég um 20.000.- (ISK) á mánuði í rafmagn, stundum minna, stundum ívið meira. Við húseigandi deildum því þannig að ég borgaði sléttan 20.000 kall mánaðarlega og gerðum svo upp þegar ég flutti.

Í Askim borgaði ég 7.000.- NOK / 140.000.- ISK í leigu á mánuði.

Fyrir utan að borga 12.000.- í húsaleigu (240.000.- ISK) þar sem ég er nú bætast semsagt við 70.000.- í rafmagn fyrir mánuð sem ég var fjarverandi að 1/3… ég þori varla að hugsa til enda hvaða upphæð stendur á reikningnum um næstu mánaðamót (en 240.000 + 70.000 = 310.000.-).

Þannig að… þessi fínu laun eru ekki að duga langt.

Í Askim hafði ég ekki mikinn tíma aflögu og þótti það miður… en samt… hér hef ég tæpast tíma til að sofa (og í fyrra svaf ég þar að auki vært í lestum og rútum, kvölds sem morgna, mikill munur!).

Ég hef ekki efni á barnapíu (á tæpast fyrir mánaðamótum ÞÓ að ég sleppi núna við að borga 4.000.- kall (NOK) á mánuði í barnapíulaun og –uppihald – sem og 3.000.- NOK í transport). Ég þarf að gera allt sjálf og nei, ég get ekki leyft mér að sleppa því að þurrka ryk og ryksuga. Það hefur bein líkamleg einkenni í för með sér. Reyndar er þetta vítahringur, því ég verð líka veik af því að þurrka af og þarf því að satsa á að ná því á föstudagskvöldum eða þegar ég hef tækifæri til að láta mér batna í friði á eftir (hef reyndar heyrt um fólk sem gerir eitthvað annað á föstudagskvöldum, en hvað um það…)

Ég á alveg ágætlega vinsamleg samskipti við fólkið í vinnunni minni. Ég veit bara ekki hvernig ég á að útskýra hver er munurinn frá því í fyrra. Einhvern veginn upplifði ég í fyrra að allir væru af vilja gerðir að, tjah, rétta út hönd og ýmist hjálpa eða sýna smá persónulegan áhuga á lífi manns… eða eitthvað. Kannski ekki frá fyrsta degi samt. Ég var jú svolítið einangruð fyrst, fannst mér. En, hafandi sagt að allir í vinnunni núna séu ósköp vingjarnlegir, þá veit ég varla hvernig ég á að festa fingur á muninum. Kannski (vonandi) þurfa þau bara meiri tíma. En það vantar eitthvað upp á þetta persónulega. Þegar nýr doktorsnemi byrjaði í vinnunni á gamla staðnum gekk allt liðið persónulega í að finna húsnæði fyrir hann, redda húsgögnum eftir þörfum… meira að segja lána honum pening og svona (ekki að ég fari fram á það), bjóða í mat og svo framvegis. Hérna fer lítið fyrir svona, en, nota bene, þau hjálpuðu mér óneitanlega þegar ég þurfti að flytja. Ekki skal ég gera lítið úr því. En í þessari vinnu er heldur engin svona „spennandi persóna“, sem ég bara er að deyja úr áhuga á að kynnast (sbr. fv. vinnuvinkonu mína (sem nú er Twitter-vinkona mín) og fleira gott fólk úr gömlu vinnunni).

Ég hef áður barmað mér yfir löngum gönguferðum og álagi og svona. Nú skal ég setja niður einn týpískan dag (já höfðinglegt af mér, ég veit. Verði ykkur að því, lömbin mín):

6.00:

Vakna (ekki alltaf splæst í sturtu hér, því vatn er hitað með rafmagni og þið hafið nú þegar séð hvað það kostar)

Reyna að starta einhverjum semi-fljótlegum morgunmat (því miður get ég ekki haft ,,seríós“ eða viðlíka, það er oftast eitthvað sem þarf að hita hjá okkur, en trúið mér, ég legg ALLT í að hafa umstangið sem minnst!!!)

Ýta við ungunum úrillu

Láta unga pissa og þannig

Koma ungunum í fötin sem valin voru kvöldið áður

Fóðra unga – og sjálfa mig (síðastnefnd gleymist reyndar stundum í hasarnum)

Koma ungum í frostþolinn alklæðnað

Stilla til friðar því ungunum finnst gaman að rífast og slást – og græta hvorn annan

Koma nesti í töskur og allir út

Á bilinu 7.15 – 7.40:

Allar út

Á bilinu 7.45 – 8.20:

Skila í skóla / leikskóla

Á bilinu 8.00 – 8.30:

Labba í vinnu

Á bilinu 8.30 – 9.00:

Byrja að vinna

15.45:

Hætta að vinna

Arka af stað að sækja unga

16.10:

Hóa á eldri unga og gefa fyrirskipun um að nú skuli klæðast í útifatnað

16.15:

Ná í yngri unga

16.25:

Ná í eldri unga

Arka heim á leið

Veita andlega ráðgjöf fyrir útkeyrð lítil grey á heimleið (og halda á töskunum þegar þær eru með í för).

Hvetja áfram… og hvílast, til skiptis.

17.30:

Koma heim

Kveikja á ofni / eldavél

Byrja að elda

Öll heimsins tilfallandi heimilisverk samhliða eldamennsku (út með rusl, þvo þvott, hengja upp og brjóta saman þvott osfr. – já og ná í eldivið sem er fáránlega leiðinlegt en sjúklega mikilvægt, til að a) hafa hlýtt inni og b) spara f***ing rafmagn!!!)

Reyna að vera ,,mamma“ líka samhliða

Oft kveikt á Facebook (desperate cry eftir sambandi við umheiminn)

18.30:

Borða (því miður borða börnin mín bæði mikið og mjög hægt. Sú eldri er sjaldan minna en klukkustund að því)

19.00:

Byrja oft að ganga frá þó sú eldri sé enn að borða (stundum báðar)

Fleiri heimilisverk

19.30:

Hátta x 2 (ókey, oftast af- og íklæðast þær sjálfar, en mamman þarf samt að vera innan seilingar)

Bursta x 2

Lesa x2 (af því að þær eru á því þroskastigi þegar 4 ára lesefnið er ,,smábarnalegt“ fyrir þá eldri og 8 ára efnið óskiljanlegt fyrir þá yngri)

Syngja x 2

Sú eldri les svo sjálf til 21.00

20.00:

Ef allt hefur gengið vel eru þær komnar upp í. Ég á enn eftir að klára að ganga frá í eldhúsi og sinna fleiri aðlaðandi skyldustörfum. Fara yfir fatnað. Hvað kom heim úr leikskóla / skóla, hvað ekki? Vantar aukaföt? Eitthvað skítugt / bilað? Veðurspá; hvernig skal klæðast í bítið næsta morgun x 3? Gera nesti, ekki bara eina smurða samloku eða eitthvað þannig, heldur 3 máltíðir fyrir 2 litlar og 1 – 2 máltíðir fyrir eina stóra, ss. matur fyrir ALLAN næsta dag. Stundum „vinn ég af mér“ um helgar, pakka fyrir 2 – 3 daga í einu… allavega fyrir stelpurnar. En það tekst ekki alltaf og oft vantar líka eitthvað. Svo er að borga reikninga og gera alls konar fullorðins.

21.00:

Í hreinskilni sagt er ég sjaldnast til stórræðanna eftir kl. 21. Ég reyni því að vera búin með verkefni eins og að fara í heimabankann áður en klukkan er orðin þetta margt, því  þá er ég bara steikt. Ekki snefill af orku eftir og ég geri oft heimskuleg mistök á þessum tíma. Kvöldverkin dragast samt oft fram undir kl. 22.00, sérstaklega ef ég leyfi mér að Facebookast á meðan. Og enn og aftur; Facebook er mín helsta tenging við umheiminn og ómetanleg sem slík… stundum truflar hún þó af því að hver sekúnta í þessum allt of stuttu sólarhringum er hreinlega of dýrmæt.

22.00:

Skreiðist úrvinda og stíf og stirð upp í rúm.

01.00:

Yngra blómið spyr í fyrra skiptið hvort það megi „kúra hjá mér“. Ég fálma eftir klukkunni og segi svo nei. Þegar heppnin er með mér sofnum við báðar fljótt aftur.

04.00:

Yngra blómið spyr hins sama á ný. Ég fálma enn eftir klukkunni og segi svo oftast ,,já“, af því að á þessum tíma er hún mjög lengi að sofna aftur og finnur upp á alls kyns tiktúrum ef ég læt hana liggja í eigin fleti, sem verður til þess að ég fæ engan frið…

Ef vel gengur sofnum við báðar aftur. Undanfarið hef ég þó ansi oft verið andvaka eftir þessa seinni vöknun… sem aftur leiðir til enn verra ástands þegar…

6.00:

… ballið byrjar á ný.

Þriðja hvern dag þarf ég að sprauta stelpurnar líka núna. Ég sem alla tíð gat varla farið ein í blóðprufu… hvað þá að stinga nál í rassa minna eigin barna. En já, það er ótrúlegt hvað kona getur fengið sig til að gera.

Helgarnar… baka brauð fyrir alla vikuna, majónes, súrkál og annað sem þarf að vera til. Passa að viðra bæði mig og ungana, stýra skjáneyslu og afþreyingu krílanna stíft. Stilla til friðar – endalaust. Alls kyns tilfallandi heimilisverk. Þvottafjallið er endalaust. Reyni að byrgja mig aðeins upp af eldivið og „vinna af mér“ nestisgerð og þannig. Gjarnan gefa mér tíma til að setjast niður og spila við ungana eða annað í þeim dúr. Er mjög lúin og lítið alúðleg mamma, samt. Moka snjó (það eru langar og lífshættulegar steintröppur (mjög „stór“ þrep, eflaust 40 – 50 sm há sum hver) úr garðinum og niður á götu. Ég er með lífið í lúkunum af skelfingu morgun hvern þegar ég þreifa mig þarna niður í svartamyrkri með kiðlingana í sitt hvorri hendi. Því er mikilvægt að snjóhreinsa þessar fótbrotsgildrur sem mest og best, þrátt fyrir bakverki sem óhjákvæmilega fylgja í kjölfarið).

Einhvern tímann þarf svo að versla líka. Stundum kippi ég einhverju með á leiðinni heim með stelpurnar. Ég HATA að draga fína gömlukonubúðartrallann minn upp þessa horngrýtis brekku. Það var ekkert mál í Askim, bara 7 mínútur niður í búð og bara mjög mildur halli. Hér er bratt, bratt, bratt og búðin virkar lengra í burtu.

Í síðustu viku fékk ég prestinn góða til að skutlast með mér að versla. Það var undursamlegt. En um leið ÖMURLEGT að vera upp á góðvild og greiðvikni annarra komin

Vitið þið… ég er komin með krónískar magabólgur – aftur. Ég var einu sinni alltaf með eitthvað sem læknirinn kallaði angioedema (sjá abdominal pains) en ég veit reyndar ekki hvort það var málið. Þetta hefur hjá mér tengst ofnæmiseinkennum, t.d. við myglusveppum og mat sem ég þoli ekki / illa – og triggerast sérstaklega í kulda annars vegar og við streitu hins vegar. Þessi fjandi var alveg hættur í framhaldi af róttækum breytingum í mataræði, markvissri uppbyggingu ónæmiskerfis og almennri meðvitund um andlega og líkamlega heilsu. Þetta lét t.d. ekkert á sér kræla í fyrravetur. En nú er uppvakningurinn orðinn ansi ágengur. Þetta plagaði mig mikið í desember, þegar ég lá andvaka um nætur og grét, af sjarmerandi blöndu af áhyggjum og hreinum sársauka. Fór svo í frí um jólin (þá svaf ég líka ÚT, alveg tvisvar, sko!) og kom svo aftur með rútínunni, af fullum krafti. Þoli engin lyf/verkjalyf, þannig að það er úti úr myndinni. Reyni að sjússa mig á tei og einhverju… en það er bara klór í bakkann. Oftast langar mig mest að liggja í keng.

Hvort sem um er að kenna streitu, glútentilrauninni hræðilegu eða sveppunum í kjallaranum (við sturtuna ægilega fínu, mest), þá er ónæmiskerfið líka í verra standi en í fyrra. Eftir nærri heilt ljómandi ár af kefír (=mjólkurvara) er ég hætt að þola hann núna. Þoli heldur ekki egg… smjör… alls konar bara. Stór skref aftur á við, semsagt.

Mér finnst svo öfgaleiðinlegt að ráða ekki við daglegt líf. Ég er fúl og leiðinleg mamma, með stuttan þráð. Það er ömurlegt. Get ekki leyft mér eða krílunum neitt, hvorki tímalega, orkulega né fjárhagslega.

Ég er alltaf að spekúlera í hlutum sem ég gæti gert til að einfalda lífið. En ég lendi alltaf í catch 22. Tökum sem dæmi þvottasamanbrot. Gæti ég sleppt því að brjóta saman og haft bara hrúgur – eina með hreinu og aðra með óhreinu…? Neibb. Ekki af því að ég þurfi að hafa brot í hverri flík, heldur af því að hrúgur safna ryki og ryk… já, þið vitið.

Ég gladdist heil ósköp í síðustu viku þegar ég fattaði að ég get sleppt því að brjóta saman nærbrækur. Þær fara bara í körfu inni í skáp og mega alveg vera óbrotnar. Jei! Dýrmætar sekúntur þar.

Og aftur að lausnaleit. Já, þið sjáið af ofangreindu að húsið er vandamál. Aðalvandinn er náttúrlega verðið. Aukavandamál er sveppaloftið sem er verra um hávetur þegar erfitt (DÝRT) er að lofta vel út. Eða kannski er það aðal-?

Allavega; þið munið, í haust, að ég skoðaði mörg hús. Þau voru öll, nema þetta og eitt sem byggt var 2007 en var mjög afskekkt, rakaskemmd (á misháu alvarleikastigi). Sem er bara ávísun á hræðileg veikindi hjá okkur. Þetta hús virtist að mestu mjög fínt, en vissulega sá ég kjallarasveppina strax. En ég var í enn verra húsnæði og var desperat að komast úr því fyrir veturinn! Hef þjarmað að kjallarasveppunum með vetnisperoxíði, tea tree olíu, orange olíu og ediki. Ekki að ég haldi að ég geti útrýmt þeim, en kannski hindrað smá gróflæði. Veit ekki hve mikið af veikindunum mínum núna er sveppir og hve mikið er STREITA.

En já, það fór brösuglega af stað að fá leigjanda. Afríkubúinn sem ég minntist á þarna á dögunum fékk lost yfir að það skyldi ekki vera sturta. Skil hann alveg, sko. Myndi ekki vilja það heldur. Þrátt fyrir ákaft sturtufráhald vegna kostnaðar…

Skíma í myrkrinu er að þennan mánuðinn mun leigusalinn minn slá 2.000.- NOK af leigunni, einmitt af því að ég fæ ekki leigutaka þarna í kjallaraholuna. En þegar upp er staðið munar samt ekki svo miklu, ég skuldaði þeim nefnilega 2.000.- kall fyrir eldiviðinn (lokagreiðsla, fjúh). Og hver veit hvað þau gera í næsta mánuði…

Og aftur að húsaleit… ég ætti að geta fengið 1,2 millur frá bankanum. Kaup marg-, marg-, marg-, margborga sig. Einn banki vildi ekki lána mér, tveir vildu lána mér 1 milljón og sá fjórði var semsgt til í 1,2 millur (ég elska þær konur, btw, þjónustufulltrúana hjá viðkomandi banka, sko). Bankinn mat að ég hefði bolmagn til að greiða afborganir upp á allt að 6.400.- NOK (ca 130.000.- ISK) á mánuði (það eru 1,2 m.). Það minntist enginn á 12.000.- á mánuði. Hef nú fylgst með húsnæðismarkaðnum í Steinkjer í á níunda mánuð. Ég get með nokkru öryggi fullyrt að ég fæ EKKERT á 1,2 millur. Ekki skúr einu sinni. Það er margt lagt út á þann pening eða minna, en það fer á mun hærra verði. Síðasta húsið sem ég skoðaði var sett á 950.000.- NOK en fór á 1,650.000.-

You see…?

Að auki krefst þetta 1,2 milljón króna lán þess að ég fái 25% af því frá bænum. En nú segir bærinn mér að það sé búið að setja ný lög sem banna þeim að lána svona á móti. Ergó; ég fengi ekki neitt hvort eð er – þó svo að ég fyndi þetta sjaldgæfa fyrirbæri: lókal húsnæði án rakaskemmda.

Og eitt enn um rakaskemmdir: Ég skoðaði á sínum tíma líka 10 hús í Østfold, Akershus og Oslo. 4 af þessum 10 voru í fínu lagi hvað þetta varðar. Hlutföllin eru því engan veginn Steinkjer í hag. Hvað er málið með þetta krummaskuð, eiginlega…?

Nú, þá er það leigumöguleikinn: Ég hef einnig fylgst grannt með leigumarkaðnum. Það er bitist um leiguíbúðir. Oft eru þær yfirboðnar líka. En við leigu þarf að borga tryggingu. Ekki óalgengt að trygging fyrir íbúð sé 3ja mánaða leiga. Og hvar á ég að fá hana? Það er ekki eins og ég sé með feitan sparifjárreikning fram hjá 310.000.- króna húsnæðisútgjöldunum á mánuði (ekki gleyma, skóla, leikskóla, mat osfrv.)…

Hef þess utan ekki séð margar aðlaðandi leiguíbúðir. Margar leiguíbúðir eru foknar áður en eigandinn nær svo mikið sem að auglýsa

Þannig að… ég er frekar stuck.

Gömul glæta í myrkrinu var glútenóþols (coeliac disease) viðurkenning með tilheyrandi fjárhagslegri umbun. En nú er eitthvað fokk á tilvísuninni minni frá lækninum, og að auki er kerfið hér afar ómannúðlegt hvað biðtíma varðar. Ég má því eiga von á að bíða í hálft ár (5 mánuði núna, 1 búinn) eftir tíma hjá sérfræðingi í Þrándheimi, sem síðan mun mögulega og ef ég er heppin, senda mig áfram til coeliac disease-fróðs sérfræðings, sem þýðir annað hálft ár. Og þó svo að hann finni það sem ég vill og staðfesti, þá er eftir að sækja um styrk og fá hann í gegn og svo framvegis. Og það er bara fyrir mig, ég er ekki byrjuð á stelpunum einu sinni…

Í nóvember og byrjun des. gerði ég mjög niðurlægjandi og niðurdrepandi hluti; ég fór fram á aðstoð. Talaði við féló… já, súrt, ég veit. Fékk bara löðrunga þar (á báðar kinnar). Var bent á heilsugæslustöð og einhver fleiri úrræði… sama sagan alls staðar: „Gleymdu því, gerspillta forréttindafrekjudós sem veist ekki hvað alvöru vandamál eru“.

Einstæðar norskar mæður fá allt að 4.000.- NOK fyrir daggæslu (leikskóli, frístund og þannig). Ég fæ ekkert af því að ég hef búið hér of stutt… gæti fengið ef ég hefði búið hér í 3 ár fyrir minna en 10 árum áður… en ég bjó hér í 2 ár og 10 mánuði, 10 árum og 9 mánuðum áður en ég kom til baka. Enn ein glufan sem ég fell í. Ég fæ heldur ekki meðlag, þökk sé erlendu láni á klakanum (en fv. eiginmaðurinn hefur vissuelga aðstoðað með það sem honum er fært).

En já, nú er ég búin að eyða mjög mörgum og dýrmætum helgarmínútum í blogg. Gæti skrifað meira, því yfir fleiru er vissulega að kvarta, fleiri glufur og úrræði hafa verið grandskoðuð og fleira hugsað og pælt. En jæja, þið eruð eflaust komin með snöruna um hálsinn hvort eð er ef þið eruð enn að lesa þetta. Óþarfi að herða að.

Ykkar viðbrögð: Engin, takk, nema þið hafið tækifæri til að koma í heimsókn og brjóta saman og þurrka af og svona (og strjúka sárþjakaða mallakútinn minn alúðlega). Ekki sýna mér samúð og segja „you go girl“ eða að ég sé dugleg eða eitthvað, því þá fer ég að grenja. Ekki heldur segja mér að ég sé aumingi að deyja úr sjálfhverfri sjálfsvorkunn, því þá fer ég líka að grenja. Lífið gengur dálítið mikið út á að grenja ekki þessa dagana, sjáið þið til (enda er ég píreygð og ljósfælin í a.m.k. 2 daga á eftir ef ég leyfi mér að grenja. Og það á að heita hollt…?!). Og nú þegar ég er búin að rasa dálítið út ætla ég að gera pláss í mínu lífi fyrir massafyrirferðamikla jákvæðni og kraftaverk og góða hluti og sjá… það mun rofa til á nýjan leik… bara vonandi SEM FYRST…

Fyrsta blogg ársins 2012
Játs, mín bara ofvirk í færslunum sko. Rétt svo komin þriðjudagurinn þriðji í nýju ári og mín bara aftur farin að fara hamförum á lyklaborðinu. Fyrr má nú aldeilis.

Ekki að ég hafi neitt fram að færa, mér fannst bara tilvalið að blogga.

Á morgun koma börnin mín. Það verður kærkomið að bæta úr knúsleysinu.

Árið hefur verið tíðindalítið fram til þessa. Ég hef ekki gifst, skilið, eignast börn, bætt á mig 3 kílóum (á la ónafngreind stjarna), svikið undan skatti, fengið afskrifaðar skuldir, farið í teygjustökk, brotið (önnur) lög, sungið lög (ekki opinberlega allavega) eða komist í fréttirnar fyrir eitt né neitt.

Ég hef heldur ekki eignast nýja vinkonu eða orðið moldrík eða hvað það var nú sem ég setti mér fyrir fyrstahlutaárs-heit þarna í síðustu færslu.

Á morgun stefni ég á að klára þriggja kílóa hamborgarhrygginn sem ég kom með í handfarangri frá Íslandi á 2. í jólum og eldaði á gamlárskvöld. Ég held að ég hafi unnið mér inn 25 mínútur í vinnu, sem jafngildir því sem ég ,,tapa” á einum degi þegar snúllurnar mínar eru í bænum (þarf sko að fylgja þeim í skóla/leikskóla, næ aldrei að vera mætt kl. 8.00).

Jebbs, lífið er æsispennandi.

Síðasta færslan 2011
Sko, það fór þá aldrei svo að ég næði ekki 2 færslum í desember…!

Ég veit að flestir hafa metnað í að þykjast allavega hafa verið að gera eitthvað awesome á gamlárskvöld. En til hvers?

Mér var boðið í partí, en ég hefði þurft að gista. Ég var eitthvað ekki alveg í stuði – fyrir utan að ég þurfti að vinna smá meira seinnipartinn (þegar mér var boðið). Er samt þakklát fyrir þá fallegu hugsun sem liggur að baki því að bjóða mér í partí. Sú sem bauð var íslensk kona sem er búin að búa hér í 19 ár og sem hefur reynst mér nokkuð liðleg síðan ég flutti. Ég bað hana reyndar að koma með mér á bíó í vikunni, en hún beilaði.

Gamlárskvöldið mitt er svona:

Ég var að vinna í dag… á milli þess sem ég þvoði þvott og málaði innanverðan walk-in skápinn í herbergi yngri dóttur minnar. Svo hitaði ég mér hamborgarhrygg undir kvöldið og snæddi fyrir framan Harry Potter og leyniklefann í sjónvarpinu. Svissaði yfir í Wallace og Grommit og hrútinn Hrein þegar það kom auglýsingahlé í Harry. Nennti svo heldur ekki að klára Potter.

Svo talaði ég við lömbin mín á Skype. Því fylgdu blendnar tilfinningar.

Svo… gekk ég frá í eldhúsinu. Hékk smá á Facebook, setti inn jólakveðju til ykkar sem ekki hafið fengið eða fáið póstleiðis, eða persónulega afhent, í ár. Sum ár eru bara klúðurslegri en önnur, og þá er bara að ræskja sig og herða upp hugann og horfa fram á við og það allt.

Núna sit ég í rauða sófanum mínum og er faktískt að hlýna, eftir ansi hreint ískaldan dag innanhúss. Eldurinn skíðlogar í arninum hérna hjá mér en það sem gerir gæfumuninn er að ég splæsti í smá hitapumpu… já, það er ekki von að þið sem eruð búsett á Íslandi hafið minnstu grunsemd um hvað það er… enda á hiti að koma inn í híbýlin í fljótandi formi og ferðast í rörum. Það er lógískt. En í Noregi eru notaðar alls konar undarlegar og kostnaðarsamar aðferðir, þar á meðal er hitapumpa sem dælir heitu lofti, svona eins og risavaxinn hárblásari, inn á ganginn okkar. Þar sem rafmagn er dýrt hér nota ég hana sparlega. En hún kemur sér vissulega vel á köldum dögum.

Ég er með alveg sérdeilis gott útsýni yfir Steinkjer – það er satt að segja einn af fáum kostunum við að búa uppi á f***ing hól. Mér á hægri hönd sé ég stöku rakettur og flugeld og heyri smá brak og bresti. Þetta á jú eftir að verða meira á eftir, en ég er alvarlega að spá í að verða sofnuð fyrir miðnætti, svo að ég geti komið í verk því sem ég þarf að koma í verk á morgun – það er ansi margt.

Fyrir ykkur sem ekki hafið fylgst alveg grannt með, þá var ég á Íslandi í 10 daga ferð nú frá aðventu og fram á 2. í jólum. Það var svo gott að sjá og hitta fjölskyldu og vini. Ég held að ekkert af ykkur sem ég hitti hafi gert sér grein fyrir því hvað ég var þyrst í félagsskapinn. Og svo fór ég líka á maaaaarga 12 spora fundi. Ekki veitti nú af.

Tíminn upp á síðkastið, ss. frá síðustu færslu, svona sirka, og fram að Íslandsferð var ekki góður. Ég var bara svo útkeyrð. Ég átti erfitt með svefn og leið virkilega illa andlega. Það leiðir meðal annars til þess að uppeldis- og umönnunarfærni mín takmarkast verulega… sem hefur í för með sér margföld aukaáhrif, til dæmis að börnin verða skapstyggari sem því nemur – og að ég verð örg út í sjálfa mig fyrir lélega frammistöðu… svo nokkuð sé nefnt. Svokallaður vítahringur. Og þeir verða margir – og margs konar – í svona ástandi.

En ókey, ég skal ekki gera úr þessu nöldur og kveinstafafærslu, svona síðasta dag ársins. Það var gaman árið 2011… stundum. Og svo var aðeins minna gaman… stundum.

Á fyrstu mánuðum nýja ársins langar mig eftirfarandi (lesa vel, álfar…):

Að pólska vinkona mín (sem fær atvinnuviðtal og ætlar að koma aftur) fái vinnu (og geti deilt með mér leigukostnaði, sem og sorgum og gleði hins daglega lífs).

Að ég sjálf eignist geðveikt yndislegar og frábærar norskar vinkonur, helst hér í Steinkjer, eða allranæsta nágrenni.

Að ég geti fengið mér au-pair aftur – og fengið smá tíma til að draga andann sjálf.

Að ég fái staðfestingu á glútenoóþoli eða sem mestu öðru ofnæmi / -óþoli sem telst til fjár…

Að fjárhagurinn blómstri

Svo langar mig í betri heilsu til handa okkur öllum, sérstaklega vona ég að fyrirhuguð sprautumeðferð eigi eftir að gefa krílunum mínum umtalsvert meiri styrk og orku – og léttari lund.

Og já, ég segi á fyrstu mánuðum ársins… af því að ekkert af þessu er eitthvað sem ég hef orku / nennu í að bíða lengi eftir. Svo finnst mér ár almennt frekar lengi að líða og staðan oft vera allt, allt önnur í lok árs en upphafi. Til dæmis á ég heima annars staðar núna en um síðustu áramót – og átti þá heima annars staðar en áramótin á undan…

Þar af leiðandi finnst mér kona mega setja inn tímamótaóskir oftar en um áramót. Það er bara bull að hugsa allt of langt fram í tímann!

En jæja, takk fyrir samfylgdina í gegnum árið – bæði á blogginu og á alla mögulega aðra vegu.

MEGI ÁRIÐ 2012 VERÐA ALLT SEM ÞIÐ ÓSKIÐ YKKUR!

Ást og friður

Glútenleigukojunágranna… eitthvað
Það er fátt verra en að skulda. Það er ekki alltaf auðvelt að borga skuldir. Ég skulda færslu – og það er jú skuld sem ég ætti að geta ráðið við að greiða. Það er stórkostlegt tækifæri.

Takk þið sem ýtið við mér að skrifa færslur. Það er hreint og beint unaðslegt að vita að einhver fylgist með og vill lesa meira. Og ekki bara hver sem er, heldur þetta bráðmerkilega fólk sem ég þekki. Dásemd. Ég er svo stolt og upp með mér. Knús á ykkur öll (líka ykkur sem ekki ýtið á eftir færslum, sko…).

Og þið viljið svo vita hvernig fór með glútentilraunina.

Algert hell bara. Viljið þið vita meira?

Látum okkur sjá. Innbyrðing hófst um 9.30 að morgni. Innbyrt voru 400 grömm af glútenbættum hveitibollum. Ég vissi ekki að hveitibollur væru glútenbættar fyrr en læknirinn sagði mér það. En ég vissi hins vegar að fyrir mataræðisumbyltingu (sumar 2009), ef ég borðaði einmitt svona bollur, þessar sem maður kaupir frosnar og hitar upp heima; þá sló allt kerfið út. Fyrsta kómað sem ég man eftir (man altsvo fyrir og eftir kóma) var þegar ég var 17 ára. Það var ekki mitt fyrsta, sko, en ég man bara að ég gat oftast falið það, en ekki í þetta sinn því ég var komin með kærasta sem hékk yfir mér lon og don. En þegar ég sveif inn í mókið gafst hann á endanum upp á að reyna að ná sambandi við mig og fór yfir til vinkonu minnar. Ég kom svo til meðvitundar um síðir, ringluð og sljó. Man þetta semsagt af því að ég þurfti smá að gera upp hug minn til þessa ástands þá. En þetta var útúrdúr. Ég elska(ði) svona hveitibollur í eina tíð. Þurfti bara að taka mér tiltekinn tíma eftir snæðingu, kannski svona 3 tíma í heild, til að vera í móki og með krampa og svona, ein í friði. Það komu stundum upp vandræðaleg móment þegar ég var ekki nógu skipulögð og þurfti að krassa í vitna viðurvist. En það var náttúrlega lítið verð að greiða fyrir himneskt bragð. Heitar bollur með brakandi nýbakaðri skorpu, bráðnu smjöri og osti… namm…

Nema hvað. Þetta gerði ég semsagt þarna um morguninn. Og svo dokúmentaraði ég sem mest ég mátti og eftir því sem ég hafði rænu til. Nema… ég reiknaði með svona 3ja tíma prósess. Gamla rútínan, sjáið þið til. Þannig var það alltaf. En ykkur að segja: Ég er enn ekki búin að ná mér (það eru komnar rúmlega tvær vikur).

Rugl. Þetta er bara RUGL. Þessi tilraun hefur opnað augu mín fyrir svo mörgu og hrært í svo mörgu og gert mig svo… tjah… við getum allavega sagt að tilfinningalegt uppnám hafi sjaldan verið meira. Ég gæti skrifað margar, margar, margar síður hér. En ég efa að almennur áhugi sé fyrir þannig ranti. Þannig að ég leyfir mér að koma með stutta vísindalega skýringu. Sko. Þrátt fyrir góða viðleitni fram til miðs árs 2009, þá var ég samt að borða böns sem líkaminn minn réði ekki við. Hvort glúten var aðalmálið veit ég ekki, en ég prófaði aldrei alveg glútenlaust fæði, þrátt fyrir ófáar tilraunir á ýmsum sviðum. Nema hvað. Í líkama sem er hvort eð er fullur af sjitti sem hann ræður ekki við, þá eru viðbrögð við hveitibolluárás svona 3ja tíma mók, magakrampar og hjartsláttur. Í líkama sem í 2 og hálft ár er búið að vera að byggja upp, svo til alveg ÁN ertandi matvæla, snyrtivara og eða annarra mögulegra áhrifavalda… eru áhrifin af hveitibollunum hins vegar HAMFARIR. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að telja upp allt sem fór í fokk, helmingurinn af því eru einkenni sem ábyggilega enginn málsmetandi læknir myndi einu sinni hlusta á, hvað þá meira – hlutir sem hrjáðu mig áður… en voru smátt og smátt horfnir og / eða á undanhaldi. Og ég saknaði þeirra ekki.

Og aftur ætla ég að reyna að stytta mál mitt: Heimilislæknirinn ágæti vildi að ég gerði þetta tvisvar. Það var það sem við „sömdum um“ fyrirfram. Þannig á það víst að vera, segir hann. En eftir þetta: Nefnilega. Glætan. NEVER.

Og að því (never) sögðu: Ég vil samt fá pening. Þannig að nú er ég búin að hringja út og suður og tala við sérfræðinga og alls konar… og þetta er nú meira vesenið. Það er bara ekkert víst að hægt sé að sanna eða afsanna að ég sé með coeliac disease (sorrý, það er ekki til orð á íslensku og nei, það er ekki sama og glútenóþol), né þá heldur eitthvað annað (til dæmis hið sívinsæla glútenóþol, hveitióþol eða annað). Af því að ég er heilbrigð núna, svona frekar (og þannig séð). Þannig að ég stend í stappi og fæ léleg svör og veit ekki neitt. Nú er ég búin að fá einhverja tilvísun, frá heimilislækninum, en veit ekki hvað hún felur í sér og fæ engin svör (enn). En ég ætla ekki að gefast upp (ja, ekki hið fyrsta allavega).

Kerfið er vinkona mín. Kerfið er vinkona mín. Kerfið er vinkona mín (=hugræn atferlismeðferð).

En vitið þið hvað? Svona hveitibolludruslur, þessar sem ég hætti líkamlegu ástandi mínu fyrir með bros á vör í denn… þær eru bara ekkert spes á bragðið. Brakandi skorpa… jújú… og voða ilmur og svona… en innihaldið er eins og sement eða eitthvað… leir… og smakkast bara ekkert spes. Smakkast bara eins og plat, einhvern veginn. Þegar kona er orðin vön alvöru mat, þá er þetta bara doldið frat. Smá vonbrigði eiginlega. En ef ég hefði vitað að það væri hægt að hreinlega venja sig af þessari fíkn, þá hefði ég kannski gert það fyrr.

Og þá svona að almennum fréttum. Ég er bara á fullu daginn út og inn. Mín frábæra vinkona frá Póllandi hefur brátt verið hjá oss í um 6 vikur og það er yndislegt og indælt. Það er ómetanlegt að hafa fullorðinsfélagsskap, einhvern sem ég get talað við og svona. Svo hitar hún handa mér engiferseyði á morgnanna og hjálpar mér við heimilisverk. 1 – 2 sinnum í viku hefur hún líka sótt stelpurnar í skólann / leikskólann. Allt telur, öll framlög af þessu tagi gera lífið mitt ögn léttara.

Eftir 4 daga fer hún. Það er stutt. Mamma mía. STUTT.

En eftir 12 daga kem ég til ykkar, ja eða þeirra ykkar sem eruð á klakanum kalda.

Þar sem vinkona mín hefur ekki fengið vinnu enn (og skortir tilfinnanlega sjálfstraust í ferlinu) þá er útlit fyrir að ég verði að grípa til Plans B. Plan B er að leigja út litlu íbúðina í kjallaranum. Var ég búin að nefna að þar er engin sturta? Annars er þar allt til alls.

Allavega. Það er flókið ferli líka. Ég þarf að vita alls konar um réttindi mín og leigutaka og verðlag og lög og alls konar. Svo þarf ég að setja (rándýra) auglýsingu í blað og skipuleggja sýningardaga og alls konar, alls konar… VESEN. Ég HATA vesen.

En fátt er svo með öllu illt…

… ég fékk ábendingu um mann sem ekki hefur átt sjö dagana sæla í íbúðaleit. Tvisvar sinnum var búið að lofa honum íbúð og hann kominn með annan fótinn inn fyrir þröskuldinn þegar upp rann fyrir húseigendum að hann var með óæskilegt litarhaft (hann er frá Kongó). Eða svo var mér sögð sagan.

Og eins og gefur að skilja sló réttsýna mannfræðihjartað mitt hraðar við þessa sorgarfrásögn… fyrir utan að það væri mikill léttir að sleppa við auglýsingaferlið og það allt. Þannig að þessi góði maður er að koma í dag, í eftirmiðdaginn, að kíkja á slotið. Ég krossa fingur og tær. Plís, plís reynast vera fyrirmyndarleigutaki og plís, plís vilja íbúðina!!!

Og fyrir ykkur sem óttist um orðspor mitt; þá er sérinngangur í kjallaraíbúðina og svona. Hann með sitt, ég með mitt.

Annars er ég búin að vera voða dugleg. Dæmi um svona einstæðrar-móður-afrek. Dætur mínar sváfu í IKEA-koju í fyrravetur. Nú eru þær í sitt hvoru herberginu (sem gerir háttatímana mun auðveldari = minna rifrildi). Ég sagaði því kojuna í tvennt um daginn. Sú eldri fékk fíneríisrúm. Sú yngri… tjah, hún bíður enn af því að ég finn ekki svona stuðningsfjalir sem vantar. Kössunum hefur fækkað til muna og það er ekki drasl í hverju horni lengur, en ég bara finn ekki þessar fjalir. Þær eru horfnar. Í bili allavega. Þannig að öskubuska litla sefur enn á dýnu, innan um rykmaura (sem hún er mjög upptekin af) og köngulær…

En þið megið hrósa mér fyrir rúmið sem ég græjaði fyrir hina… og fyrir útsjónasemina. Sú yngri fær sitt rúm líka í fyllingu tímans.

Svo er það með nágrannann. Ég á skrítinn nágranna. Hann á tvo syni, sá eldri er ári yngri en eldri dóttir mín og okkar yngstu eru jafnaldrar. Piltarnir eru hjá honum aðra hvora helgi, svona sirka. Stelpurnar hafa aðeins leikið við þá. En þessi maður er… bara svo skrítinn. Hann leggur mikið á sig til að hafa kontakt og segir sér finnast mikilvægt að eiga góð samskipti við nágrannana. Um leið er hann rosalega undarlegur eitthvað, í samskiptum. Eftir nokkrar tilraunir til að tala við hann hef ég allavega dregið þá ályktun að við eigum engan veginn saman, ég meina, ekki einu sinni sem svona „spjalla-yfir-limgerðið“ grannar. Allar okkar samræður eru einhvern veginn sundurslitnar af skorti á gagnkvæmum skilningi, líka þegar umræðuefnið er bara veðrið. Fattið þið hvað ég á við? Bara allt önnur bylgjulengd einhvern veginn.

Um síðustu helgi bauð hann okkur með á krakkaleikhús til Þrándheims. Mjög fallegt af honum, sko. En ég sá fyrir mér samtals 4 klukkustundir (fram og til baka) í farþegasætinu í hans félagsskap og fékk smá asthmakast við tilhugsunina. Þannig að ég sagði nei takk (eins kurteislega og mér var unnt).

Hann er vinur minn á Facebook núna. Og svo fékk ég vinabeiðni frá ógurlegri nýnasistastereótýpu, sem reyndist vera vinur hans. Þá sagði ég bara nei takk og blokkeraði (minna kurteislega).

Ég vil ekki afhjúpa nöfn og svona á blogginu, en þið megið alveg spyrja mig um nöfn svona prívat og þá getið þið skoðað þessa merkismenn á feisinu og myndað ykkar eigin skoðanir…

Ég veit ekki hvað ég á að halda.

Munið þið hvað ég óskaði mér í vor? Þarna þegar ég setti fram óskalistann um heimili okkar í Steinkjer? Ég minntist sko líka á nágrannana. Ég veit ekki alveg á hvaða hátt álfunum finnst þessi maður vera svar við bænum mínum.

En það kemur kannski í ljós.

Glúten
Bara örstutt… eiginlega eru allar færslur stuttar þessa dagana af því að það er svo mikið að geeeeera.

En ég sit í lestinni – ekki halda að það þýði að ég hefi ekkert að gera, ég er með þúsund verkefni sem af skal hespa í lestinni, sko. En ein stutt færsla verður það. Það sem mig langaði aðallega að tala við einhvern um, til dæmis ykkur, er að á morgun ætla ég vísvitandi að stofna heilsu minni í hættu. Er það ekki klikkað?

Stutta útgáfan af þeirri löngu sögu er að ef tilraun mín (sem inniheldur glúten) fer sem ég tel sennilegt að hún fari mun ég hafa grundvöll til að sækja um matarkaupastyrk þar sem sérfæði er jú all nokkuð miklu dýrara en mainstream fæði. Það væri nú búbót.

Hef hugsað um þetta lengi. Var ekki sátt við annars framúrstefnulega og frábæra heimilislækninn þegar hann lagði til þessa tilraun. Hef mögulega einhvern tímann svarið þess eið að verðleggja ekki heilsu mína.

En jæja, það er þetta með nöktu konuna.

Hann lagði til að ég gerði dætur mínar að vísindalegum tilraunadýrum líka, einnig í von um fjárstyrk fyrir niðurstöðurnar.

Við sjáum til með það. Eitt skref í einu.

Allavega, var í Þrándheimi. Workshop í gær og námskeið í dag. Nú er námskeiðið búið, alveg, for ever… og leiðbeinandinn minn er að fara í mjaðmaaðgerð. En svona er nú bara lífið.

Og ég að fara að borða glúten og liggja afvelta með hjartslátt og andateppu. Ja hérna hér.

11.11.11…
… er afstaðinn.

En lengi hefur hans verið beðið með eftirvæntingu.

Áður en ég dembi mér í endalausu helgarverkin (baka brauð og undir- og útbúa mat fyrir vikuna, þvo vikuhlassið af þvott og helst versla líka, svo er von á gestum á eftir)… þá er tími fyrir smá ábyrgðarlaust blaður á skjáinn. Uppi í rúmi. Með ískalda putta. Dætur mínar í skólaleik í næsta herbergi.

Og já, 11.11.11 er liðinn og 100 ár í næsta. Eldri dóttir mín (sem missti framtönn í gær) er þar af leiðandi orðin 8 ára og eldri systir mín (altsvo, hún er eldri en ég), er orðin 46 ára.

Svo veit ég um tvö börn sem urðu 7 ára og eitt sem varð 11 ára, sem er eiginlega töffast, sko þannig.

Nákvæm greining leiðir einnig í ljós að öll afmælisbörn gærdagsins eru kvenkyns.

Svo var sjálfstæði Póllands fagnað í gær líka. Pólland er semsagt líka kvenkyns.

Þetta var nú meiri dagurinn.

En þetta hafðist.

Munið þið eftir martraðar-7 ára afmælinu í fyrra?

Allavega, í þetta 8 ára afmælið mættu færri og prúðari stúlkur og 3 af alls 18 foreldrum (10 barna, hvar af eitt systkinasett var með) voru viðstaddir allan tímann (sem eflaust hefur hjálpað upp á að halda friðinn). 2 feður og 1 móðir. Sem er bara eðlilegt kynjahlutfall hér í Noregi, en reynið bara að láta þetta hlutfall koma fram á Íslandi. Sorrý þið vel giftu kvenkyns lesendur (og pabbi)… en ég bara sé ekki íslenska karlmenn jafn virka í uppeldi og lífi sinna barna.

Ekki að Norðmenn séu eitthvað flekklausir, eða að hver og einn norskur karlmaður sé fæddur eðalfaðir… en bara svona almennt þá dáist ég að því hvað norskir feður eru yfirleitt eðlilega involveraðir og hve munurinn er sláandi frá því sem ég þekki á Klakanum – hvað þá í öðrum menningarkimum. Og svona á þetta náttúrlega að vera (ss. eins og hér). Ef barni er frá náttúrunnar hendi úthlutað tveimur foreldrum, þá á það að fá 50% umönnun og athygli af hendi hvors fyrir sig.

En já, allavega, þetta afmæli gekk alveg sæmilega. Enginn grenjaði, nema afmælisbarnið, eftir að hún öskraði á yngri systur sína, sem fór við það að brynna músum… þá brast sú eldri í grát af eintómum æsingi, blöndnum ótta við að ég myndi skamma hana fyrir að græta systur sína…

… en það gekk fljótt yfir.

Börnin fúlsuðu við pylsunum, múffunum og afmæliskökunni. Leiðinlegt fyrir þau… En öll átu þau vínber.

Svo var ég með tilbúna frostpinna, en ég gleymdi þeim þar til bara 2 gestir voru eftir.

En allavega, svona er lífið. Nú bíða mín skrömbluð egg (ég elska að eiga sambýliskonu) og svo þúsund verkefni.

En til að klikkja út afmælisfrásögninni, þá var farið í leiki og blásið á kerti og rifnir upp pakkar og allur strúktúr frekar laus í reipunum og svona.

Afmælisbarnið var sátt, upprifið og himinsælt. Sofnaði ekki fyrr en eftir kl. 22.00 og svaf því út í morgun (klukkan var langt gengin í sjö þegar hún vaknaði)…

… og þessi færsla er nr. 111… er það ekki skemmtileg tilviljun?